Alls hafa 70 íslenskir frjálsíþróttamenn tekið þátt í 21 móti á tímabilinu 1946 til 2016
Evrópumeistaramót í frjálsíþróttum var fyrst haldið í Torino á Ítalíu 1934. Mótið var haldið í París 1938 en síðan ekki fyrr en í Osló 1946 og þá sendu Íslendingar stóran hóp keppenda, 10 manns. Mótin voru yfirleitt haldin á fjögurra ára fresti (með undantekningum 1969 og 1971) fram til 2010 en þá var ákveðið að keppt yrði á tveggja ára fresti. Íslendingar sendu 7 til 10 manna hóp á fyrstu fjögur mótin en frá 1962 til dagins í dag hafa keppendur frá Íslandi verið á bilinu 2 til 6. Silfrið hefur tekið saman allan árangur allra keppenda og veður hann gerður aðgengilegur síðar. Hér verða nokkur eftirminnileg atriði tekin fyrir og birtur listi yfir alla íslenska keppendur á EM.
Fjórir Íslendingar hafa unnið til verðlauna
Gunnar Huseby er einn mesti afreksmaður sem Ísland hefur alið. Hann vann gullverðlaun á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti í Osló 1946 og kastaði 15,56 m. Fjórum árum seinna vann hann aftur gullverðlaun og nú með yfirburðum, kastaði þá 16,67 m.
Torfi Bryngeirsson vann gullverðlaun í langstökki í Brussel 1950. Torfi komst líka í úrslit í stangarstökki og þótti líklegur til að ná verðlaunum í báðum greinum. Þar sem úrslitin i þessum greinum fór fram á sama tíma varð hann að velja á milli. Hann valdi langstökkið og vann gullverðlaun með stökki upp á 7,32 m.
Örn Clausen vann silfurverðlaun í tugþraut í Brussel 1950 eftir gríðarlega harða keppni við Ignace Heinrich. Örn var fyrstur eftir fyrri daginn og var keppnin mjög hörð allan tímann en Örn hlaut 6819 stig, aðeins 8 stigum minna en Heinrich. Það vakti mikla athygli þegar Örn sá að hann myndi ekki hafa sigur og hægði á í lokin á 1500 m hlaupinu til að taka í hönd Heinrich og saman fóru þeir yfir marklínuna.
Ég mun aldrei gleyma síðustu
grein tugþrautarinnar, þegar ég
dauðþreyttur fann hönd Íslendingsins
taka um mína, og þar með
gera mér ljóst, að ég væri búinn
að vinna gullið fyrir Frakkland (Heinrich í blaðaviðtali eftir einvígið við Örn)
Vilhjálmur Einarsson er að sjálfsögðu þekktastur fyrir silfurverðlaunin í þrístökki á Ólympíuleiknum 1956. Færri vita að hann vann bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu 1958 í Stokkhólmi, stökk 16,00 m. Þá má geta þess að hann var nálægt verðlaunasæti fjórum árum seinna og varð þá í sjötta sæti.
Íslensku spretthlaupararnir frábærir í Brussel 1950
Það er ótrúlegt að lesa blaðfregnir frá þessum tíma, hver spretthlauparinn á fætur öðrum komst í úrslit og svo komst boðhlaupssveitin í úrslit og var svo sannarlega í baráttunni, varð í 5. sæti á 41,9 sek. og á sama tíma og sveitir Breta og Svía sem urðu í 3. og 4. sæti. Guðmundur Lárusson komst í úrslit í 400 m hlaupi og varð 4. á 48,1 sek. Haukur Clausen komst í úrslit í 100 og varð 5. á 10,8 sek. Ásmundur Bjarnason komst í úrslit í 200 og varð í 5. sæti á 22,1 (21,9 í undanúrslitum). Boðhlaupssveitin var skipuð þeim Finnbirni Þorvaldssyni, Ásmundi Bjarnasyni, Guðmundi Lárussyni og Hauki Clausen.
Frá 1966 hafa 16 konur tekið þátt í EM utanhúss
Hlutur íslenskra frjálsíþróttakvenna hefur verið stór á síðari árum og síðar væri gaman að gera árangri þeirra allra skil hér á síðunni. Blað var brotið 1966 þegar Sigrún Sæmundsdóttir tók þátt og í Aþenu 1969 keppir spretthlauparinn Kristín Jónsdóttir og annar spretthlaupari og grindahlaupari, Ingunn Einarsdóttir, keppti í Helsinki 1971.
Á mótunum 1974 og 1978 keppir engin íslensk kona en1982 keppir Þórdís Gísladóttir í hástökki og á níunda og tíunda áratugnum keppa þær Helga Halldórsdóttir í 400 m grindahlaupi, Martha Ernstsdóttir í 10.000 m hlaupi, Guðrún Arnardóttir í 400 m grindahaupi og Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir í stangarstökki.
Eftir aldamótin 2000 hafa sex konur tekið þátt, Ásdís Hjálmsdóttir í spjótkasti, Helga Margrét Þorsteinsdóttir í sjöþraut, Kristín Birna Ólafsdóttir í 400 m grindahlaupi, Hafdís Sigurðardóttir í langstökki, Aníta Hinriksdóttir í 800 m hlaupi og Arna Stefanía Guðmundsdóttir í 400 m grindahlaupi
Það var 1966 sem Ísland sendi fyrst konu til keppni. Það var Sigrún Sæmundsdóttir HSÞ sem kepppti í hástökki og fimmtarþraut í Búdapest 1966.
Guðrún nálægt verðlaunasæti og margar komist í úrslit, síðast Ásdís og Aníta
Guðrún Arnardóttir var í hópi bestu grindahlaupara heims um tíma. Á Evrópumeistaramótinu í Budapest 1998 varð í hún 4. í úrslitum í 400 m grindahlaupi á 54,59 sek. Stangarstökkvararnir Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir náðu að komast í úrslit og á síðasta móti komust Ásdís Hjálmsdóttir og Aníta Hinriksdóttir í úrslit og náðu báðar 8. sæti. Ásdís komst einnig í úrslit 2010 og varð þá í 10. sæti.
Alls 70 keppendur fyrir Ísland
Það eru alls 70 Íslendingar sem keppt hafa á EM í frjálsum utanhúss. Ásdís Hjálmsdóttir hefur oftast tekið þátt og í Berlín keppir hún á sínu sjötta móti. Aníta Hinriksdóttir er að keppa á sínu þriðja móti, Guðni Valur í annað sinn en Sindri Hrafn í fyrsta sinn.
Aníta Hinriksdóttir | 2014, 2016 | 800 |
Arna Stefanía Guðmundsdóttir | 2016 | 400 m grindahlaup |
Ásdís Hjálmsdóttir | 2006, 2010, 2012, 2014, 2016 | spjótkast |
Ásmundur Bjarnson | 1950, 1954 | 100, 200, 4×100 |
Bjarni Stefánsson | 1971 | 100 |
Björgvin Hólm | 1958 | tugþraut |
Björn Margeirsson | 2006 | 800 |
Björn Vilmundarson | 1946 | langstökk |
Einar Daði Lárusson | 2012 | tugþraut |
Einar Vilhjálmsson | 1982, 1986, 1990 | spjótkast |
Elías Sveinsson | 1978 | tugþraut |
Erlendur Valdimarsson | 1969, 1971 | Kringlukast, sleggjukast |
Finnbjörn Þorvaldsson | 1946, 1950 | 100, 200, 4×100 |
Guðmundur Hermannsson | 1969 | kúluvarp |
Guðmundur Lárusson | 1950 | 400, 4×100 |
Guðmundur Sverrisson | 2014 | spjótkast |
Guðmundur Vilhjálmsson | 1954 | 100 |
Guðni Valur Valsson | 2016 | kringlukast |
Guðrún Arnardóttir | 1998 | 400 m grindahlaup |
Gunnar Huseby | 1946, 1950, 1958 | kúluvarp, kringlukast |
Hafdís Sigurðardóttir | 2014, 2016 | langstökk |
Hallgrímur Jónsson | 1954, 1958 | kringlukast |
Haukur Clausen | 1950 | 100, 4×100, tugþraut |
Heiðar Georgsson | 1958 | stangarstökk |
Helga Halldórsdóttir | 1986 | 400 m grindahlaup |
Helga Margrét Þorsteinsdóttir | 2010 | sjöþraut |
Hilmar Þorbjörnsson | 1958 | 100 |
Hreinn Halldórsson | 1974, 1978 | kúluvarp |
Ingunn Einarsdóttir | 1971 | 100 m grindahlaup |
Íris Grönfeldt | 1986 | spjótkast |
Jóel Sigurðsson | 1946, 1950 | spjótkast |
Jón Arnar Magnússon | 1994, 1998, 2002 | tugþraut |
Jón Diðriksson | 1978, 1982 | 800,1500 |
Jón Ólafsson | 1946 | kringlukast |
Jón Þ. Ólafsson | 1962, 1966 | hástökk |
Kári Steinn Karlsson | 2014 | maraþon |
Kjartan Jóhannsson | 1946 | 400, 800 |
Kristinnn Torfason | 2012 | langstökk |
Kristín Birna Ólafsdóttir | 2010 | 400 m grindahlaup |
Kristín Jónsdóttir | 1970 | 100 |
Kristleifur Guðbjörnsson | 1962 | 3000 m hindrunarhlaup |
Magnús Jónsson | 1950 | 800 |
Martha Ernstsdóttir | 1990, 1994 | 10000 |
Oddur Sigurðsson | 1982 | 400 |
Óðinn Björn Þorsteinsson | 2010, 2012 | kúluvarp |
Óliver Steinn | 1946 | langstökk |
Óskar Jakobsson | 1978 | kringlukast |
Óskar Jónsson | 1946 | 800, 1500 |
Pétur Einarsson | 1950 | 800, 1500 |
Pétur Guðmundsson | 1990,1994, 1998 | kúluvarp |
Pétur Rögnvaldsson | 1958 | tugþraut |
Sigrún Sæmundsdóttir | 1966 | hástökk, fimmtarþraut |
Sigurður Einarsson | 1986, 1990, 1994 | spjótkast |
Sigurður Matthíasson | 1990 | spjótkast |
Skúli Guðmundsson | 1946 | hástökk |
Skúli Thorarensen | 1954 | kúluvarp |
Stefán Hallgrímsson | 1974 | tugþraut |
Stefán Sörensen | 1946 | þrístökk |
Svavar Markússon | 1958 | 800, 1500 |
Torfi Bryngeirsson | 1950, 1954 | langstökk, stangarstökk |
Trausti Stefánsson | 2012 | 400 |
Vala Flosadóttir | 1998, 2002 | stangarstökk |
Valbjörn Þorláksson | 1958, 1962, 1966 | stangarstökk |
Vésteinn Hafsteinsson | 1990, 1994 | kringlukast |
Vilhjálmur Einarsson | 1954, 1958, 1962 | þrístökk |
Vilmundur Vilhjálmsson | 1978 | 100,200 |
Þorsteinn Ingvason | 2010 | langstökk |
Þórdís Gísladóttir | 1982 | hástökk |
Þórður B. Sigurðsson | 1954 | sleggjukast |
Þórey Edda Elísdóttir | 1998, +2002 | stangarstökk |