Meistaramót Íslands í 10.000m hlaupi fór fram á Kópavogsvelli í dag. Blikinn Arnar Pétursson varð Íslandsmeistari í karlaflokki og FH-ingurinn Íris Anna Skúladóttir í kvennaflokki.
Arnar hljóp hringina 25 á tímanum 32:28,98 og kom í mark tveimur mínútum og ellefu sekúndum á undan FH-ingnum Val Ella Valssyni sem var annar. Íris Anna kom í mark á tímanum 37:27,59 og var um þremur mínútum á undan liðsfélaga sínum Huldu Fanný Pálsdóttur sem fékk silfur. ÍR-ingurinn Helga Guðný Elíasdóttir var þriðja á tímanum 42:48,13.